Það styttist í einn mesta annatíma íslenskra sveita, vorið, og ekki seinna vænna að huga að vorverkunum. Sáðvara, heyverkunarvörur og áburður er áhersluvaran í þessum Vorbæklingi sem við hvetjum alla okkar viðskiptavini til að kynna sér.
Í vorbæklingnum er að finna upplýsingar um helstu vörur sem Lífland hefur upp á að bjóða þegar kemur að sáðvöru, rúlluplasti, heyverkun og áburði. Við hvetjum þig til að kynna þér vöruframboð okkar og ef spurningar vakna eða þörf er á nánari upplýsingum hvetjum við þig til þess að hafa samband við söluráðgjafa okkar í síma 540 1100 eða senda póst á netfangið lifland@lifland.is.
Hér má nálgast Vorbækling Líflands 2023
Gangi ykkur vel í vorverkunum!
Kærar kveðjur,
Starfsfólk Líflands