Flýtilyklar
Saddles & accessories
Hrímnir Memory foam undirdýna
Þessi einstaka undirdýna hefur þann nýstárlega eiginleika að gefa hestinum meira rými til hreyfinga. Memory foam fóðrunin er aðeins undir þyngdarberandi hluta hnakksins sem gerir það að verkum að minni þrýsingur er á fram og afturparti hnakksins. Þetta auðveldar hestinum að sveigja sig og gefur hámarks þægindi og aðlögunarhæfni.
Fóðrunin er gerð úr memory foam, sem var hannað af NASA til að ná hámarks höggvörn. Þessi svampur býður bæði höggvörn og hámarks þyngdardreifingu þar sem það leiðréttir minniháttar ójöfnur milli hnakksins og baks hestsins.
Yfirborðsefnið er endingargott og heldur formi sínu fullkomlega. Hliðin sem liggur að hestinum er einkar mjúk og þægileg fyrir hestinn. Efnið andar og hrindir frá sér raka.
Lykkjur fyrir móttök tryggja rétta staðsetningu dýnunnar undir hnakknum. Lykkjan er stillanleg með frönskum rennilás.
- Aukið frelsi til hreyfinga í þjálfun
- Hámarks höggvörn og þyngdardreifing vegna memory foam efnisins
- Sérstök fóðrun undir aðal þyngdarberandi hluta baks hestsins tryggir minni þrýsting undir fram og afturhluta hnakksins.
- Hámarks þægindi og aðlögun
- Fallegur skrautborði
- Efni: 80% polyester, 20% bómull
- Fóður: 100% polyester
- Fylling I: 100% polyester
- Fylling II: memory foam
- Má þvo í þvottavél á allt að 30°C
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.