Flýtilyklar
Hnakkar
Hrímnir Heritage
Vörunúmer
TRO13014-BL-175
Nýjasti hnakkurinn frá Hrímni skartar tvöföldum löfum og sérlega vel löguðum hnépúðum.
- DuPont® Flex virki
- AMS® gerviullarfylling í undirdýnum
- BayFlex® svarmpur í sæti
- XChange® umskiptanleg virkisjárn
- Gott jafnvægi hlutfalls milli móttaka
Einkenni:
- Djúpt sæti
- DuPont® Flex virkið sér til þess að hnakkurinn truflar hestinn sem allra minnst og gefur herðablaðinu fullt frelsi til hreyfingar.
- Hrímnir-Soft seat sætið
- auka lag af BayFlex® svampi í sætinu til að ná fram hámarks þægindum og öryggi
- bælist ekki með tímanum
- sérstaklega hannað með lágmarks saumum undir legginn til að knapinn sitji sem réttast
- mikil þægindi og góður stuðningur fyrir knapann
- Einkaleyfisskyldar AMS® gerviullarfylltar undirdýnur
- Mjög stuttar og skáhallandi undirdýnur sem henta vel bakstuttum og/eða lendarháum hestum. Hentar sérlega vel til notkunar á marga mismunandi hesta, mesti alhliða hnakkurinn frá Hrímni. Einkaleyfisskyldar AMS® gerviullarfylltar undirdýrnur eru mýkri og betri fyrir bak hestsins. Mjúkar dýnur og breitt bil milli undirdýna hvetja hestinn til að lyfta og nota bakið á virkari hátt og knapinn nýtur mýkra og meira höggdeyfandi sætis.
- Tvöföld löf gefa möguleikann á því að hafa ístaðsólarnar undir eða yfir efra lafi.
- Fremra móttak tengist framanverðu innra lafi og gyrðist þannig að hnakkurinn hefur sérlega góða tengingu við hestinn.
- Hnépúðar
- vel lagaðir hnépúðar styðja vel við án þess að þvinga stöðu og sæti knapans
- styðja við knapann að mestu ofan hnés
- veita góðan stuðning og festu fyrir legginn
- púðarnir eru staðsettir ofan á ytra lafi
- Breitt bil á milli undirdýna tryggja að hnakkurinn passar vel og dreifir þyngd á ákjósanlegan hátt
- Gerður úr besta leðri sem fáanlegt er á markaðnum
- Leðrið er jurtalitað svo það heldur lit sínum afar vel og er einkar mjúkt
- Auðkennandi útlit með víkingamynstri á lafi og málmplötu á hnakkbrík
- Kemur með járni í vídd Wide, aðrar víddir fáanlegar
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.
Leit
Karfa
Skoða körfu
Karfan er tóm