Flýtilyklar
Hnakkar
Hrímnir Master
Hrímnir Master hefur dýpra sæti sem að hjálpar knapanum að sitja í jafnvægi, slakur og uppréttur.
Hnépúðarnir styðja við ofan við hnéð svo að knapinn situr lóðrétt og hefur betra jafnvægi. Það er afar mikilvægt að velja rétta lengd af sæti. Þegar að knapinn situr slakur í hnakknum eiga lærin að liggja upp að púðunum, annars er sætið of langt.
Eiginleikar:
- Djúpt sæti
- Hrímnir-Soft seat seta
- auka lag af BayFlex® svampi í sæti til að auka enn frekar á þægindi
- pressast ekki saman með tímanum
- Hnépúðar
- eru staðsettir utan á lafiu og styðja við lærið en ekki hnéð
- bjóða góðan stuðning og rétta stöðu fótleggs hjá öllum gerðum knapa
- hentar sérlega vel hávöxnum knöpum eða knöpum með hnjávandamál
- púðinn lagar sig að knapanum og sér til þess að lærið fær ávalt góðan stuðning
- Einfalt leður í löfum
- sterkara og endingarbetra leður
- Kemur með hnakknefsjárni í vídd M
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.