Flýtilyklar
Belgjurtir
Hvítsmári UNDROM forsmitaður 10kg
Gamalt yrki sem er þrautreynt hérlendis. Gefur ágæta og lystuga uppskeru. Forsmitað fræ sem þarf ekki að smita fyrir sáningu.
Hvítsmári hentar mjög vel til beitar og sláttar. Hvítsmári breiðir úr sér með jarðrenglum og mun því auka þekju sína árin eftir sáningu. Hann skilar ekki mikilli uppskeru en gefur góðan endurvöxt, hefur ágætt vetrarþol og gott beitarþol.
Ávinningur af notkun niturbindandi belgjurta í landbúnaði er vel þekktur en smárategundir líkt og aðrar tegundir af ertublómaætt binda nitur með aðstoð niturbindandi rótarbaktería. Æskilegt er að draga úr köfnunarefnisnotkun á tún þar sem smári er ræktaður, bæði til þess að bæta samkeppnisstöðu smárans en ekki síst til þess að hagnýta niturbindinguna. Í íslenskum jarðvegi skortir jarðvegsbakteríur sem binda nitur í samlífi við smárategundir. Hingað til hafa bændur þurft að sérmeðhöndla smárafræ með Rhizobiumbakteríum til þess að virkja niturbindingareiginleika smárans. Með forsmitaða smáranum frá Líflandi er þetta nú úr sögunni.
Ráðlagt sáðmagn er 7-11 kg/ha
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.