Flýtilyklar
Rúlluplast, stæðuplast og annað til heyverkunar
Möttulfilma - plast í stað nets
Möttulfilma er valkostur í nýrri rúllusamstæður þar sem plastfilma er notuð í stað hefðbundins rúllunets.
Möttulfilma er valkostur í nýrri rúllusamstæður þar sem plastfilma er notuð í stað hefðbundins rúllunets.
Lífland býður upp á TriobaleCompressor möttulfilmu í 16 míkrona þykkt.
Kostir möttulfilmu:
- Má endurvinna með rúlluplasti.
- Viðbótarlög sem eru ógegndræp og verja gegn súrefni.
- Berst síður með fóðrinu við gjöf.
- Fljótlegra að taka af rúllum.
- Betri og snyrtilegri pökkun.
- Viðbótarvörn á brúnir heyrúllanna.
- Betri varðveisla fóðurs.
Fæst í tveimur breiddum og lengdum: 128 cm x 2400 m og 140 cm x 2200 m.
Algengast er að setja 3-4 vafninga af möttulfilmu á hverja heyrúllu þegar um er að ræða vothey en 5-6 vafninga ef um er að ræða þurrverkað hey og/eða meira sprottið. Sjá meira hér: TrioBaleCompressor upplýsingar.
Til að áætla magnþörf er ummál heyrúlla eftirfarandi eftir þvermáli (deila svo metrafjöldanum sem út kemur í heildarlengd möttulfilmurúllunar):
- 110 cm = 346 cm, margfaldað með 3-4
- 120 cm = 377 cm, margfaldað með 3-4
- 130 cm = 408 cm, margfaldað með 3-4
- 140 cm = 440 cm, margfaldað með 3-4
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.