Flýtilyklar
Vöðvar, liðir & sinar
Blue Hors Muscl' E-vitamin
Muscl‘E-vitamin er fóðurbætir fyrir hesta, með náttúrulegu E-vítamíni, seleni og lýsíni. E-vítamín og selen eru andoxunarefni sem hlutleysa skaðleg úrgangsefni sem safnast upp í vöðvunum við mikla hreyfingu og þjálfun.
E-vítamín getur hjálpað til við að auka frjósemi ræktunardýra.
Leiðbeiningar um notkun:
500 kg: Eftir keppni og mikla þjálfun: 26 - 52g á dag
Þegar daglegt fóður inniheldur lítið magn af E-vítamíni: 13 - 26g á dag
350 kg: Eftir keppni eða mikla þjálfun: 13 - 26g á dag
Þegar daglegt fóður inniheldur lítið magn af E-vítamíni: 6 - 13g á dag
Mælið og blandið við annað fóður, ein mæliskeið er 13g
Innihaldsefni: Dextrósi, kalsíumkarbónat, L-lýsin súlfat og luctarom (lyktarefni)
Aukefni pr. kg: E-vítamín, náttúrulegt D – alfa - tókóferól 18364 mg, E-vítamín - DL-alfa-tókóferól 14628 mg, selenómeþíónín framleitt af Saccharomyces cerevisiae CNCM I-3399 (Se: 15 mg) 6818,18 mg, L-lýsín 100g.
Greiningarþættir: Hráprótein 14,96 %, hráfita 0 %, hrátrefjar 0 %, hráaska 31,9 %, kalsíum 12,6 %, natríum 0,0%
Geymist í lokuðum umbúðum á þurrum og köldum stað
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.