Flýtilyklar
SJAMPÓ hestar
Blue Hors White Matiné sjampó f. hvíta hesta
Blue Hors White Matiné sjampóið er gert fyrir hvítan feld á hestum og hundum. Feldurinn verður hreinn, mjúkur og fallegur. Inniheldur Aloe Vera til að koma í veg fyrir að feldur og húð þorni upp. 473 ml.
Blue Hors White Matiné er hvíttunarsjampó fyrir gráa og hvíta hesta og hunda. Sjampóið inniheldur sérstakt mýkingarefni sem gerir feldinn hvítan og að sama skapi hreinsar það feldinn vel og gerir hann silkimjúkan. Feldurinn verður skínandi hreinn, fallegur og mjúkur.
Sjampóið styrkir feldinn sem annars getur orðið mattur undan daglegu álagi hnakks og annarra reiðtygja. Má einnig nota á hunda. 473 ml.
Notkunarleiðbeiningar:
Bleytið feld, fax og tagl hestsins. Kreistið ákjósanlegt magn af sjampói í fötu. Bætið vatni í fötuna þar til froða myndast. Nuddið blöndunni á feld hestsins með svampi eða bursta. Nuddið froðunni sérlega vel á staði sem eru mjög skítugir. Látið bíða í c.a 1 mínútu. Skolið vel úr feldinum og endurtakið eftir þörfum.
Geymið á frostfríum stað.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.