Flýtilyklar
Forðastautar
Elite Sauðfjár-forðastautar 50 stk
Forðastautar sérlagaðir að þörfum sauðfjár. Innihalda helstu snefilefni, þ.á.m. selen. Henta fullorðnu fé fyrir fengitíð eða áður en hleypt er út að vori. Henta einnig geitum.
Forðastautar (sérfóður) sérlagaðir að þörfum sauðfjár. Innihalda helstu snefilefni, þ.á.m. selen. Henta fullorðnu fé fyrir fengitíð eða áður en hleypt er út að vori. Henta einnig geitum.
Elite Sauðfjár-forðastautarnir eru ætlaðir til inngjafar um munn og leggja til langtímaskammt af lífsnauðsynlegum snefilefnum og miðla frá sér innihaldsefnum í 6 mánuði (180 daga). Í pakkanum eru 50 x 14 gr. forðastautar, samtals 700 g.
Notkun: Kindur og geitur yfir 25 kg lífþunga: 1 forðastautur 1 mánuði fyrir tilhleypingar, 1 forðastautur við um sauðburð, 1 forðastautur þegar hleypt er út og 1 forðastautur þegar fé er hýst. Gefið inn um munn. Notið viðeigandi inngjafarbyssu og látið gripi standa við inngjöf. Varist að gefa önnur bætiefni samtímis sem leggja gripnum til of mikinn skammt snefilefnanna sem forðastauturinn leggur til.
Samsetning: Járn (ballest), jurtafita (repjuolía), kalsíumsterat.
Greiningarþættir: Kalsíum 1,0%, fosfór 0,0%, natríum 0,2%, magnesíum 0,2%.
Næringarleg aukefni (pr. kg.): Joð (3b202 kalsíumjoðat, vatnsfirrt) 51.460 mg, kóbalt (3b302 kóbalt (II) karbónat) 15.600 mg, mangan (3b502 mangan (II) oxíð) 125.860 mg, sink (3b603 sinkoxíð) 296.000 mg, selen (3b801 natríumselenít) 6.440 mg.
Lykilorð: Forðastautar, sauðfé, bolus, snefilefni.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.