Flýtilyklar
Taugar & orka
Pavo BeChill
Pavo BeChill er fljótandi og lystugur fóðurbætir fyrir hesta, sem inniheldur róandi innihaldsþætti, þ.e. hjartafró/sítrónumelissu og magnesíum.
Pavo BeChill getur stutt hestinn við streituvaldandi aðstæður á borð við flutning, meðhöndlun dýralæknis og járningar, svo dæmi séu nefnd. Virkni BeChill næst fram á 30-120 mínútum.
Hjartafró (Melissa officinalis) er gamalreynd lækningajurt sem inniheldur róandi efnaþætti sem hægja á taugaviðbrögðum sem leitt geta til streitu. Magnesíuminnihaldið hægir einnig á streituviðbrögðum og dregur úr myndun streituhormónsins kortisóls.
Lykileiginleikar:
- Skjót verkun, 30-120 mín
- Vel þekkt virkni
- Dregur úr streitu án þess að letja eða þreyta
- 100% náttúrulegt
Notkunarsvið:
- Við flutning
- Við meðhöndlun dýralæknis, járningar o.fl.
- Við rakstur
- Í keppni
- Í upphafi tamningar
- Flugeldar og annar hávaði
- Flutningar
Notkunarleiðbeiningar:
- Gefið út á fóður eða saman við vatn kvölds og morgna í aðdraganda streituvaldandi atburðar
- 10-40 ml/dag
- ATH! Ekki ætti að gefa fylfullum hryssum BeChill.
Samsetning: Magnesíumsúlfat, magnesíumklóríð.
Aukefni: Hjartafró (Melissa officinalis) 1.820 mg, stevía 1.420 mg.
Greiningarþættir: Hráaska 4,1%, hráfita 0,2%, hrátrefjar 1%, hráprótein 0,3%, magnesíum 2%, vatn 83,6%, natríum 0%.
1 líter í brúsa.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.