Flýtilyklar
Bækur
Knapamerki 3
Í þriðja hefti Knapamerkjanna er fjallað um gangtegundir, fóðrun, uppbyggingu og þjálfun hrossa.
Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.
Í þriðja hefti Knapamerkjanna er fjallað um:
- Gangtegundir íslenska hestsins og þjálfun þeirra
- Fóðrun, líkamsbygging hesta og grunnþjálfun
- Form hestsins og hugtök sem tengjast réttri líkamsbyggingu, þjálfun s.s. misstyrk, samspora, undirlínu og yfirlínu
- Spennu og slökun
- Fimiþjálfun og einfaldar fimiæfingar
- Ásetuþjálfun
- Hindrunarstökk
- Blaðsíðufjöldi: 101.
- Höfundur: Helga Thoroddsen
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.