Flýtilyklar
Bits
Fager SABINA stangir með bita
Fager SABINA stangirnar hafa stystu kjálkana á íslenska mélamarkaðnum. Frábærar fyrir knapa sem vilja gefa greinilegri merki en með hringamélum en ekki eins hörð og með lengri stöngum.
Fager SABINA stangirnar eru nýtt, frábært mél fyrir íslenska hestinn og eru hannaðar og þróaðar í samvinnu við Sabina Swärd.
”Ég var að leita að keppnisméli fyrir mig og nemendur mína sem gefur nákvæma tengingu við hestinn. Mélið ætti að vera mjúkt í munni og þægilegt að nota. Ég keppti áður með Pelham stangir en nemendur mínir bentu á að það getur verið flókið að ríða við tvo tauma. Í samvinnu við Fager mélaframleiðandann gátum við hannað mél með mjög stuttum kjálkum, sem notað er við einn taum. Við ákváðum einnig að nota títaníum málm í mélin, sem hestarnir mínir eru mjög sáttir við. Léttleiki títaníumsins kemur í veg fyrir að þeir leggist á tauminn.
Ég vona að þetta mél hjálpi fólki að eiga góða reiðtúra í sátt við hestinn sinn líkt og flestir leita að"
Sabina Swärd
Afar þægilegar, léttar, íslenskar stangir með tígullaga bita. Tígullaga biti Fager mélanna hefur einstaka lögun sem hentar einkar vel til að ná fram virkni og þægindum.
Lögun mélsins og lárétt lega þess kemur í veg fyrir hnetubrjótáhrif, minnkar líkur á að mélið klípi og snertir ekki góm hestsins. Mélið brotnar fram í munn hestsins en ekki upp í góminn. Það mýkir þrýsting á miðja tunguna og dreifir honum yfir legusvæði mélsins.
Samskeyti mélsins við kjálkann koma í veg fyrir að mélið klípi munnvik hestsins og bætir merki knapans til hestsins. Hægt er að losa keðjuna báðu megin og hún dreifir þrýstingi milli hnakka, kjálka og munns hestsins.
Títaínum er mjög léttur málmur með takmarkaða hitaleiðni, sem eykur þægindi hestins, sérstaklega í köldu veðri. Léttleiki mélanna hjálpar hestinum við að einbeita sér að merkjum knapans frekar en mélinu sjálfu.
Titanium málmurinn hefur marga kosti:
- Vinnur gegn bakteríum
- Einkar sterkur og sérlega léttur málmur
- Hvetur munnvatnsframleiðslu, er volgur viðkomu og eykur líkur á að hesturinn verði sáttur við mélin.
- Eiturefnalaus og ofnæmisfrír
- Viðhaldsfrír og auðvelt að hreinsa
- 105mm / 4¼" - 10mm
- 115mm / 4½" - 12mm
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.