Flýtilyklar
Heilsa umhirða hestar
ChitoClear sáraúði og gel
Chitoclear er íslenskur sáraúði og gel sem hentar fyrir öll dýr.
- Mjög græðandi og bakteríudrepandi
- Virkar vel á brunasár, bráða- og krónísk sár
- Hefur reynst vel gegn hnjóskum
- Hægir á blæðingu
- Dregur úr sársauka og kláða
- Myndar filmu og hlífir sárinu
- Vinnur gegn bakteríu og sveppamyndun
ChitoClear® efnið er lyktarlaust, litlaust og bragðlaust, laust við ofnæmismyndandi efni, vírusa og önnur skaðleg efni. Með blöndu af hágæða hráefni úr ómegnuðum sjó og einstakri vinnslutækni framleiðir íslenska fyrirtækið Primex eitt hreinasta og virkasta chitosan sótthreinsandi efni í heimi í dag. ChitoClear® er einstakt, breiðvirkt, náttúrulegt efni sem gefur mikla möguleika á notkun fyrir húð og hár og getur komið í staðin fyrir fjölda tilbúinna efna sem eru notuð í heilsuvörur í dag.
- Náttúrulegt
- Líffjölliða
- Bakteríudrepandi
- Sveppaeyðandi
- Veirueyðandi
- Eiturefnalaust
ChitoClear® er jákvætt hlaðið efni sem laðar að sér og binst við fitusýrur sem eru neikvætt hlaðnar. ChitoClear® getur dregið í sig allt að 4-6 sinnum eigin þyngd í fitu, ásamt LDC kólesteróli og komið veg fyrir upptöku þess í líkamanum.
Jákvæð hleðsla ChitoClear® mólekúla dregur að sér neikvæða hleðslu rauðra blóðkorna og gerir úðann/gelið að áhrifaríku blóðstorkumyndandi efni.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.