Flýtilyklar
Hnakkar
Eques Performance hnakkur
Eques Performance hnakkurinn er miðlungsdjúpur hnakkur sem gefur gott samband við hestinn.
EQUES PERFORMANCE – Hnakkur sem hannaður er af Rasmus Møller Jensen, fyrir hámarksafköst.
- Miðlungsdjúpt sæti sem gefur gott samband við hestinn.
- Stuttir hnépúðar með Soft Foam aðstoða knapann að réttri ásetu.
- B-virki
- Hægt að skipta um járn í hnakknefi – Járn A
- Gerður úr hágæða kálfsleðri
- Hnakkaábreiða fylgir hverjum hnakki
Hægt er að sérpanta hnakkinn með ullarfyllingu í undirdýnu og sérstakar stærðir 16'', 16,5'' og 18''.
Ég hef hannað hnakk sem ýtir undir afslappaða ásetu, sem að mínu mati, er nauðsynlegt fyrir gott samband milli manns og hests. Jafnvægi milli manns og hests er grundvallaratriði í því að ná hámarks afköstum og árangri.
Performance er fyrsti hnakkurinn sem við byggjum á B-virki. B-virkið hannaði ég sjálfur til að draga saman kosti nokkurra heima, framhallandi staða virkisins sem tryggir frelsi hestsins til bóghreyfinga, vítt bil milli undirdýna sem auðveldar bakvöðvum hestsins vinnuna og að lokum, hallinn á hliðum sætisins, sem gefur ótrúlega næmt samband við hestinn.
Hið næma samband sem Performance hnakkurinn gefur auðveldar knapanum að draga fram bestu hliðar hestsins þegar mest liggur við, td. í keppni og á kynbótasýningum. Stuttir hnépúðarnir gefa góðan stuðning við læri knapans og henta öllum stærðum og gerðum leggja. Hnakkurinn heldur sérlega vel við knapann svo að ég mæli með því að þú takir stærri valkostinn ef þú ert milli stærða.
Ég hannaði hnakkinn í nettu og klassísku útliti til að koma í veg fyrir að hnakkurinn dragi athygli frá góðri og fallegri sýningu.
Til að draga saman, Performance is hannaður fyrir keppni en er auðvitað einkar hentugur hnakkur fyrir þá sem vilja næmt samand við hestinn.
– Rasmus Møller Jensen
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.