Flýtilyklar
Skordýravarnir
SnailStop sniglagirðing
Frábær nýjung til að verja grænmeti og gróður fyrir sniglum án þess að nota eitur sem einnig hefur áhrif á önnur skordýr.
Rafmagnsgirðingin ver grænmetið þitt og gróðurinn fyrir sniglum án þess að nota sniglaeitur. Sniglagirðingin er algerlega skaðlaus fyrir fólk og gæludýr.
Svona virkar girðingin: Rafmagnsgirðingin myndar tálma fyrir allar gerðir snigla í garðinum. Girðingin hefur tvo rafmagnsleiðara sem liggja hlið við hlið. Ef snigillinn snertir báða leiðara fær dýrið óþægilegan rafstraum sem rekur það til baka.
Þar sem að straumurinn er lágur (9 V rafhlaða) skaðast dýrin ekki heldur fá aðeins óþægilega tilfinningu sem rekur þau strax til baka. Önnur dýr og fólk finna strauminn ekki og hann er algerlega skaðlaus.
Lím er á borðanum, sem festist við næstum allt yfirborð (plast, málm, við, stein, steypu) og stytta má borðann ef þörf er á. Hreinsa þarf það yfirborð sem líma skal borðana á. Auðvelt er að lengja með auka 10 metra borða (AK291128) eða 20 metra borða (AK291129) og tengjum (AK291127).
Enga rafmagnsþekkingu þarf til að tengja borðann við rafmagnsspenninn. Tengiklipsi tengir girðinguna við rafmagnsspenninn. Tvö LED ljós auðvelda eftirlit með stöðu rafhlöðunnar og straumi girðingarinnar.
Tengja má nokkrar girðingar saman með girðingatengi (AK291126) og nota þá sama rafmagnsspenni fyrir allar girðingarnar. Með þessari aðferð er hægt að lengja girðinguna í hámark 30 metra.
- Áreiðanlegt
- Umhverfisvænt
- Án eiturs
- Drepur sniglana ekki
- Skaðlaust fólki og gæludýrum
- Auðveld uppsetning
- LED ljós auðvelda eftirlit og viðhald
- Hægt að lengja
- Tengja má saman fleiri en eina girðingu
Settið inniheldur:
1 x Rafgirðingaspenni með tengiklipsi
1 x 10m rafborða (AK291128)
1 x 9 Volta rafhlöðu
1 x Leiðbeiningabækling
Aukahlutir:
AK291128 Auka sniglagirðing 10m borði
AK291129 Auka sniglagirðing 20m borði
AK291126 Tengi milli tveggja sniglagirðinga
AK291127 Tengi á sniglagirðingu SlugStop 2 stk
No more snails with SnailStop - Electric snail fence from Albert Kerbl GmbH on Vimeo.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.