Flýtilyklar
Bits
Fager SALLY múffumél
Fager SALLY mélið fellur vel að munni hestsins og dreifir þrýstingi á tungu og tannlausa bilið.
Bitinn er stuttur og hefur lítil áhrif á góm hestsins þar sem að mélið brotnar útávið en ekki uppávið við taumtak. SALLY mélið hentar sérlega vel hestum með lítinn/lágan góm og stóra tungu. Það getur verið erfitt að finna mél fyrir slík hross.
Koparrúllunni er sérlega vel tekið af mörgum hestum. Koparinn í rúllunni gefur sætt bragð og hesturinn getur leikið við rúlluna með tungunni. Rúllan er aðeins breiðari en samskeytin á mélinu svo hesturinn finnur vel fyrir henni. Þetta eykur þrýstinginn á tunguna ef hesturinn leggst á mélið og verður þungur á tauminn.
Eins og Fager MAX mélið er SALLY gerð úr hreinu, gegnheilu títaníum. Endingargott og afar létt tvíbrotið títaníum mél án læsivirkni.
SALLY hentar hestum sem sýna eftirfarandi hegðun:
- Þungur á tauminn
- Sterkur, leggst á mélin
- Reynir að setja tunguna yfir mélið
- Hristir hausinn
- Gerir snöggar höfuðhreyfingar til að losna undan taumsambandi
- Stingur út úr sér tungunni eða bryður mélin óstjórnlega
Laus hringur eða múffumél?
Múffa gefur mélinu stöðugleika og taumsambandið verður beinna og hnitmiðaðra. Ef hesturinn þinn veigrar sér við taumsamandi er oft betra að nota múffumél. Laus hringur leyfir meiri hreyfingu á mélinu í munni hestsins, sem minnkar líkur á að hesturinn leggist á tauminn. Laus hringur gefur knapanum kost á hröðum og nákvæmum skilaboðum. Ef hesturinn er með þykk munnvik er gott að gott að nota gúmmíhringi með múffu, sem og lausum hringjum.
Titanium málmurinn hefur marga kosti:
- Vinnur gegn bakteríum
- Einkar sterkur og sérlega léttur málmur
- Hvetur munnvatnsframleiðslu, er volgur viðkomu og eykur líkur á að hesturinn verði sáttur við mélin.
- Eiturefnalaus og ofnæmisfrír
- Viðhaldsfrír og auðvelt að hreinsa
Hestalógóið á mélinu á alltaf að vera við hægra munnvik hestsins og snúa fram.
- 105mm / 4¼" - 10mm
- 115mm / 4½" - 12mm
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.