Flýtilyklar
Belgjurtir
Smáratún TAÐA 15kg
Grasfræblanda með blöndu af forsmituðum smára. Fyrir mikla og lystuga uppskeru og endurvöxt.
Blanda þar sem áhersla er lögð á hámarks uppskeru og endurvöxt. Hentar best þar sem minna reynir á vetrarþol. Ferlitna rauðsmári PEGGY gefur mikla uppskeru og góðan lystugleika.
Innihald: Vallarfoxgras RAKEL 30%, SWITCH 20%; hávingull REVANSCH 18%; vallarrýgresi BIRGER 15%; forsmitaður rauðsmári PEGGY (4n) 17%.
Ráðlegt sáðmagn 25-30 kg/ha.
Ávinningur af notkun niturbindandi belgjurta í landbúnaði er vel þekktur. Í íslenskum jarðvegi skortir jarðvegsbakteríur sem binda nitur í samlífi við smárategundir. Hingað til hafa bændur þurft að sérmeðhöndla smárafræ með Rhizobiumbakteríum til þess að virkja niturbindingareiginleika smárans. Með nýju forsmituðu fræblöndunum frá Líflandi er þetta úr sögunni. Smáratúns-grasfræblöndurnar innihalda, auk grasfræs, smárafræ sem húðað er með Rhizobium-bakteríum og næringarlagi sem gefur fræinu auka orku til spírunar og kemur smáranum á legg fljótt og örugglega.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.