Flýtilyklar
Grasfræblöndur
Smáratún BEIT 15kg
Blandan gefur góða uppskeru. Hún hentar til beitar og sláttar en hefur gott vetrarþol. Blandan inniheldur forsmitað smárafræ.
Blanda þar sem áhersla er lögð á gott þol fyrir beit og traðki. Gefur góða uppskeru og hentar bæði vel til beitar og sláttar. Hvítsmárinn bætir uppskeru og eykur lystugleika.
Fjölbreytt samsetning grasstofna gefur blöndunni gott viðnám fyrir þurrki, beitarálagi og skaða, t.d. vegna vetrarálags.
Innihald: Vallarfoxgras SNORRI 14%, RAKEL 29%; hávingull REVANSCH 15%; vallarrýgresi BIRGER 15%; vallarsveifgras KUPOL 10%; forsmitaður hvítsmári HEBE 17%.
Ráðlegt sáðmagn 25-30 kg/ha.
Ávinningur af notkun niturbindandi belgjurta í landbúnaði er vel þekktur. Í íslenskum jarðvegi skortir jarðvegsbakteríur sem binda nitur í samlífi við smárategundir. Hingað til hafa bændur þurft að sérmeðhöndla smárafræ með Rhizobiumbakteríum til þess að virkja niturbindingareiginleika smárans. Með nýju forsmituðu fræblöndunum frá Líflandi er þetta úr sögunni. Smáratúns-grasfræblöndurnar innihalda, auk grasfræs, smárafræ sem húðað er með Rhizobium-bakteríum og næringarlagi sem gefur fræinu auka orku til spírunar og kemur smáranum á legg fljótt og örugglega.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.