Flýtilyklar
Salt- & vítamínsteinar - nautgripir
Kalksaltsteinn með og án hvítlauks
Kalksaltsteinn er íslenskur saltsteinn fyrir búfénað, framleiddur úr endurnýttu salti úr fiskvinnslu og hafkalki úr Arnarfirði auk þess að vera A- ,D-, E-vítamín- og selenbættur. Passar í saltsteinahaldara. Fæst einnig með viðbættum hvítlauk.
Saltið í Kalksalti kemur frá fiskverkunum. Til að halda kolefnissporinu í lágmarki og sækja ekki vatnið yfir lækinn, er saltið oftar en ekki sótt í fiskverkanir á Vestfjörðum og stundum ekki lengra en 30 metra. Eldri bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta. Sérstaða kalksalts felst í þessu góða salti sem ekkert af innfluttu vörunum getur skákað.
Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds. Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.
- Kalksaltið er steypt í melassa, sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.
- Kalksaltsteinn fæst í 2 x 1,8 kg pakka og sem 7,5 kg steinn. Báðar gerðir passa í alla venjulega saltsteinahaldara.
- 7,5 kg steinninn fæst jafnframt með viðbættum hvítlauk.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.