Hvort heldur þarf að girða af smáspildur eða lengri girðingar býður Lífland upp á úrval af girðingarefni og sérþekkingu sölumanna á hvað hentar við hvaða aðstæður hverju sinni.
Túngirðinganet
Lífland býður upp á 5, 6 og 7 strengja net frá Moreda og Rylock frá Betafence.
Gaddavír
Lífland býður upp á Mottó stálvír í 250 metra rúllum og Iowa járnvír í 200 metra rúllum.
Þanvír
Þanvír til að girða varanlegar rafgirðingar er til í 650 metra rúllum.
Bindi- og benslavír
Bindivírinn er bæði til Ø3 mm og Ø 4 mm þá býður Lífland einnig Ø 1,6 mm benslavír. Vírinn er ýmist seldur í kílóavís eða heilum rúllum.
Tréstaurar
Lífland býður upp á gagnvarða tréstaura. Staurarnir eru sívalir með spíssi á endanum og fást í eftirfarandi stærðum: Ø50/150sm, Ø60/180 sm, Ø70/180 sm og sverari horn- eða hliðstaura í Ø120/250 sm og Ø120/270 sm.
Vinkilstaurar
Lífland býður upp á galvaniseraða vinkilstaura sem eru 4 sm á kant og 180 sm langir. Vinkilstaurarnir eru einkum notaðir þar sem girðingastæðið er mjög grýtt eða hraun undir.
Hliðgrindur
Lífland býður upp á úrval af hliðgrindum, ýmist létthlið eða útdraganleg rörahlið í ýmsum lengdum. Hliðin eru hentug hvort heldur í túngirðingar í heimtraðir. Þá býðst einnig 4,2 m breitt sumarbústaðahlið sem tilvalið er í sælureitinn í sveitinni.