Flýtilyklar
Back on Track konur
BoT Hálskragi m/frönskum
Back on Track hálskragi með frönskum. Fjórar stærðir.
Auðvelt er að setja Back on Track hálskragann á sig og hann hylur háls, herðar og ofanvert bak. Hægt er að nota kragann undir önnur föt. Kraginn lokast með frönskum rennilás undir höku. Fáanlegur í stærðum (ummál háls) S = 35cm, M = 39cm, L = 43cm and XL = 45cm.
100% polypropylene með keramiki
Má þvo á 30°C á kerfi fyrir viðkvæman þvott.
Hið einstaka Welltex keramikefni Back on Track hefur þann eiginleika að endurkasta hita. Efnið er samvirkni fornrar kínverskrar reynslu og nútíma tækni í hönnun vefnaðar. Þessi aðferð við linun sársauka var þróuð í Kína til forna þar sem notaðir voru hitaðir marmarasteinar á sára vöðva. Kínverjar notuðu sérstakan marmara með sérstökum málmoxíðum sem gerðu það að verkum að þeir linuðu sársauka. Málmoxíð endurkasta líkamshita og örva þar með blóðflæði og frumuvirkni. Vinsældir og efturspurn eftir þessum sérstaka marmara jókst hratt og hvatti kínverja til að líta til annarra leirtegunda sem einnig innihalda sömu málmoxíð. Þeir bökuðu þennan leir og formuðu í keramikplötur sem þeir gátu notað á svipaðan hátt og marmarasteinana. Með tímanum fundu þeir þær leirtegundir sem höfðu sömu áhrif og marmarinn. Þessar plötur hafa verið notaðar til að bræða fínt keramikduft í þræðina sem svo eru notaðir til að vefa Welltex efnið. Þetta þýðir að efnið hefur sömu áhrif og keramikplöturnar.
Vel skrásett er að innrauði hitinn eykur blóðflæði. Aukið blóðflæði minnktar vöðvaspennu og hefur fyrirbyggjandi áhrif. Notkun Back on Track varanna fyrir þjálfun og keppni hefur sannað gildi sitt sem mikilvægur liður í að koma í veg fyrir meiðsli. Mannfólk og dýr geisla líkamshita bæði við hvíld og hreyfingu og því má nota Back on Track vörurnar bæði á nóttunni og við þjálfun. Í hvíld er hitageislunin þó minni en þegar líkaminn er í vinnu. Þess vegna er er árangursríkast að nota vörurnar, bæði við hvíld og hreyfingu, á þau svæði sem útsettust eru fyrir meiðslum.
Hvernig skal hefja notkun Back on Track vörunnar?
Það er mikilvægt að byrja hægt að nota vörurnar til þess að líkaminn venjist áhrifum þeirra. Notið vörurnar í mesta lagi í 4 tíma fyrstu 2 – 3 dagana. Ástæðan fyrir þessu er að sumir einstaklingar finna mikið fyrir áhrifum efnisins og geta fundið fyrir óþægindum. Í hestum og hundum geta óþægindin komið fram sem bólga. Þetta gerist vegna aukins blóðflæðis og er til merkis um að keramik efnið virkar vel á vöðvana. Fyrstu óþægindi eða bólga gætu gert vart við sig eftir aðeins nokkurra klukkustunda notkun. Hætta skal notkun vörunnar það sem eftir lifir þess dags og nota hana í smá skömmtum næstu daga til að líkaminn venjist áhrifunum.
Eftir kynningartímann má auka notkunartímann til allt að 8 tíma á dag og helst lengur. Jákvæð áhrif á stífa vöðva og liði sjást jafnvel eftir svo lítið sem klukkutíma notkun. Langvinnari vandamál geta þurft nokkurra daga notkun, allt að 10-20 daga, áður en ákjósanlegur árangur næst. Svo skal nota vörurnar eins og þér finnst virka best. Gott getur verið að nota vörurnar í einhven tíma og taka svo pásu, eða minnka hversdagslega notkun við hreyfingu eða til dæmis á nóttunni.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.