Flýtilyklar
Bækur
Knapamerki 5
Í fimmta og síðasta hefti Knapamerkjanna er lögð áhersla á gangtegundir og þjálfun þeirra.
Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.
Í fimmta og síðasta hefti Knapamerkjanna er lögð áhersla á gangtegundir og þjálfun þeirra. Helstu atriði sem fjallað er um í heftinu:
- Saga reiðlistarinnar
- Þjálfunarlífeðlisfræði
- Gangtegundir og gangtegundaþjálfun
- Hringteymingar, teymingar og vinna við hönd
- Keppni á íslenskum hestum
- Blaðsíðufjöldi: 166.
- Höfundur: Helga Thoroddsen
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.