Flýtilyklar
Endurskin gæludýr
LED ljós með hanka
LED ljós með kröftugu ljósi og ryðfríum lás í sama lit. Ljósið sést í allt að 500m fjarlægð.
Hægt er að láta LED ljósið blikka hratt, blikka hægt eða lýsa stöðugt, með því að þrýsta einu sinni, tvisvar eða þrisvar á starttakkann. Þrýstið einu sinni í viðbót til að slökkva á ljósinu.
Það er auðvelt og fljótlegt að skipta um rafhlöðu í ljósinu (rafhlaða CR2032). Rafhlaða fylgir. Líftími rafhlöðunnar er c.a 70-120 klst.
Fæst í fjórum flottum litum: Appelsínugult, grænt, hvítt og bleikt.
Með þessu LED ljósi sést hundurinn þinn vel og þið eruð öruggari í umferðinni í myrkrinu. Allir sem keyrt hafa bíl í myrkri vita hversu erfitt er að sjá hluti, dýr og fólk í vegkanti ef ekkert endurskin eða ljós er til staðar svo að því betur sem þú og hundurinn þinn sjáist, því meiri líkur á að bílstjórar hægi á sér og haldi fjarlægð.
Ljósið hentar sérlega vel til að smella á hálsól, taum eða beisli. Ljósið má auðvitað líka hengja á fatnað, bakpoka, reiðhjól, barnavagna ofr. Prófaðu þig áfram. Það mikilvægasta er að þú sjáist.
- Blikkandi LED ljós með lás í sama lit.
- Ljós í flottum litum, sem tryggir að þú og hundurinn þinn sjáist í myrkrinu.
- Lýsir skært með LED
- Sýnilegt í allt að 500 m fjarlægð.
- Getur blikkað hratt, hægt eða lýst stöðugt.
- Auðvelt að nota
- Vatnsþétt
- Hentar vel á hálsólar, tauma og beisli.
- Má einnig nota á bakpoka, hjól, barnavagna ofr.
- Rafhlaða fylgir. Hægt að skipta um rafhlöðu CR2032
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.