Flýtilyklar
Grænfóður
Bakteríusmit f. ertur/baunir/flækjur
Einn poki dugir til að smita 100 kg af ertufræi og hestabaunafræi.
Ertu- og baunaplöntur geta bundið köfnunarefni úr andrúmslofti með hjálp bakteríu af stofninum Rhizobium. Með bakteríusmiti er hægt að minnka þörfina á köfunarefnisgjöf töluvert.
Einn 100g poki af bakteríusmiti dugir til smitunar á 100 kg af ertu- eða baunafræi.
Leiðbeiningar um smitun ertu- og baunafræs:
Þegar sá á fræinu, skal blanda innihaldi pokans í um 2-3 lítra af mjólk/vatni á poka. Eftir að hrært er, er vökvanum sem inniheldur bakteríurnar dreift yfir fræið og blandað vel saman þannig að hvert fræ verði rakt, t.d. í vel hreinsaðri steypuhrærivél eða múrbala. Smitun skal framkvæmd stuttu fyrir sáningu, og ber að forðast að fræið hitni eða verði fyrir beinu sólarljósi þar sem bakteríurnar deyja auðveldlega ef þornar.
Æskilegt er að sá smituðu fræi strax, helst í skýjuðu veðri og valta strax á eftir.
Geyma skal smitað fræ í kæli verði einhver bið á dreifingu. Smitið þarf einnig að geymast í kæli og skal forða því frá sólarljósi.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
-
Bakteríusmit fyrir smára 105 gr
Verð3.460 kr. -
Ertur Ingrid
Verð5.735 kr. -
Ertur Matilda
Verð4.588 kr. -
Hestabaunir Sampo 20 kg
Verð4.262 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.