Flýtilyklar
Hófar & hárafar
Repjuolía Sandhóll 5L
Íslensk, kaldpressuð repjuolía fyrir hesta, frá Sandhóli í Meðallandi. Góður og hollur orkugjafi fyrir hross.
Repjuplantan er ræktuð á Sandhóli í Meðallandi, Skaftárhreppi án notkunar skordýraeiturs, illgresiseyðis eða annarra óæskilegra efna. Olían er kaldpressuð og heldur því næringarefnum mjög vel. Olían er rík af Omega 3.
Repjuolía er góður orkugjafi fyrir hross í léttri og mikilli þjálfun en nýtist einnig til að bæta holdafar hrossa. Olían er rík af mettuðum, ein- og fjölómettuðum fitusýrum. Með olíugjöf er minni hætta á hófsperru og öðrum kvillum sem oft geta fylgt kjarnfóðurgjöf. Omega fitusýrurnar í repjuolíunni hafa jafnframt jákvæð áhrif á hárafar.
Olían er gefin út á kjarnfóður. Ráðlagður skammtur 80-120 ml/dag pr. hest.
Innihald: 5 lítrar af olíu úr repjufræjum.
Efnainnihald pr. kg:
Orka 37 MJ
Fita 1000g
Þar af:
- mettaðar fitusýrur 50g
- einómettaðar fitusýrur 570g
- fjölmómettaðar fitusýrur 303g
- Omega 3 110g
- E-vítamín 88mg
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.