Flýtilyklar
Höfuðleður og reiðmúlar
Top Reiter ORKA nasamúll
Top Reiter ORKA nasamúllinn er einkar mjúkur nasamúll með nefól skreyttri með tigereye steindum, hraunperlum og kristallahringjum.
Hin einstaka tigereye steind grípur augað og er einnig þekkt fyrir róandi og verndandi eiginleika. Hraunperlurnar hafa einstaka áferð og gefa nasamúlnum ekki aðeins einstakt, íslenskt útlit heldur endurspegla einnig kraft og styrk.
Hið mjúka hágæða leður, með svörtum sylgjum og Top Reiter lógói gefa nasamúlnum tímalaust útlit. Nefólin fer öllum hestshöfðum vel og er afar þægileg fyrir hestinn. Einfaldleiki hönnunarinnar í samblandi við fallega röðun hraunperlanna, tigereye steindanna og kristallanna gera þennan nasamúl frábæran valkost fyrir alla knapa sem vilja fágað og tímalaust beisli.
ORKA höfuðleðrið og ORKA nasamúllinn mynda hið fullkomna beislissett.
Lýsing:
- Mjúkt hágæða leður
- Tigereye steindir (gylltar til ljósbrúnar)
- Hraunperlur
- Kristallahringir
- Svartar sylgjur
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.