Flýtilyklar
Hundaólar
LED ljósaól á hunda
LED ljósaól fyrir hunda. Ein stærð, klippt niður í rétta stærð fyrir þinn hund. Fjórir litir.
Chrisco LED hálsólin lýsir í kraftmiklum litum og gerir hundinn sýnilegan í allt að 500m fjarlægð. Notið ljósaólina með hefðbundinni ól hundsins. Hægt er að stilla ólina þannig að hún blikki hratt, blikki hægt eða lýsi stöðugt, með því að þrýsta einu sinni, tvisvar eða þrisvar á starttakkann. Þrýstið einu sinni enn til að slökkva.
Upplagt að nota sitt hvorn litinn ef um fleiri en einn hund ræðir til að þekkja hver er hvað í lausagöngu í myrkri.
Engin þörf er á því að skipta um rafhlöður þar sem að ólin er hlaðin með USB tengi. Það er mjög auðvelt og fljótlegt að endurhlaða LED hringinn með USB snúru sem fylgir. Hleðsluinnstungan á ólinni er varin með gúmmíi svo að nota má ólina óháð veðri.
Lengdina má stilla að hálsumfangi hundsins þíns með því að klippa sílikonið milli LED ljósa. Eftir það er lokið sett á nýja endann og ólin er tilbúin til notkunar. Nota má LED ljósahringinn má nota bæði fyrir síðhærða og stutthærða hunda. Óháð feldlengd mun ljósahringurinn sjást í allt að 500 metra fjarlægð.
Svona hleður þú rafhlöðu LED hringsins:
- Athugið að slökkt sé á ólinni. Að öðrum kosti hefur það áhrif á hleðslutíma og líftíma LED hringsins.
- Tengið USB snúruna við hringinn.
- Tengið hinn enda snúrunnar við hleðslubanka, tölvu eða annan straumgjafa.
- Gaumljós lýsir dauft við hleðslu.
- Gaumljósið slokknar þegar hleðslu er lokið og rafhlaðan er fullhlaðin. Hleðslutíminn er c.a 1 til 1,5 klst.
Fullhlaðinn hringurinn lýsir skært í 6 - 8 tíma. Ljóstími fer eftir því hvaða stilling er notuð.
Með þessum LED hálshring getið þú og hundurinn þinn gengið öruggari í umferðinni í myrkrinu. Afar erfitt er fyrir bílstjóra og vegfarendur að sjá hunda í lausagöngu og í taumi án endurskins/ljóss. Gerðu allt sem þú getur til að vera sýnilegri í umferðinni.
Athugið.
LED hálshringurinn er með CE-, RoHS-og WEE- vottun.
Lengd óklippt: 70 cm
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.