Flýtilyklar
Melting & góðgerlar
Mervue Co-Lix 80 ml
Co-Lix er fóðurbætiefni á þykknisformi, sem styður við meltingu hesta með krampamyndandi hrossasótt. Gott að eiga sem fyrsta viðbragð áður en hesturinn kemst undir hendur dýralæknis.
Dregur úr óþægindum vegna fyrstu einkenna hrossasóttar. Kemur jafnvægi á meltingu þegar hrossasótt eða verkir frá meltingarvegi gera vart við sig. Gagnast einnig til að létta á einkennum vegna ofþornunar, ofhitnunar eða þegar hross eru útsett fyrir mygluðu fóðri.
Lykileiginleikar:
- Getur dregið úr einkennum hrossasóttar.
- Linar magakrampa.
- Veitir stuðning við meltingarveg.
- Gasmyndun er náttúrulegt ferli, Co-Lix getur dregið úr einkennum hrossasóttar í meltingarvegi.
- Magnesíumhýdroxíð hlutleysir umframsýru og hjálpar til við að draga úr verkjum og ónotum í maga auk þess að hafa hægðalosandi eiginleika.
- Inniheldur grikkjasmára sem inniheldur andoxunarefni og náttúrulega bólguvörn sem dregur úr eiturefnum og hægðatregðu og styður við örflóru meltingarvegarins.
- Einfalt og þægilegt í notkun.
ATH! Undantekningarlaust skal kalla til dýralækni vakni grunur um hrossasótt!
Fóðrunarleiðbeiningar (m.v. 350 kg hest):
Gefið 50ml eða það magn sem mælt er með af dýralækni. Co-Lix má gefa aftur eftir 4 klukkutíma.
Athugið að hesturinn þarf ávallt að hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni.
Fjarlægið tappann af sprautunni. Snúið hringnum til að stilla skammtastærð. Stingið stútnum inn í tóman munn hestsins. Beinið stútnum að aftanverðri tungunni og þrýstið á sprautuna þar til hún stoppar á skammtahringnum.
Greiningarþættir: Raki 70%, hráaska 15%, hráolía og fita 0,1%, hráprótein 1,5%, hrátrefjar 0%, natríum 0%
Samsetning: Magnesíumhýdroxíð, gulvandarrót, gerafurðir, grikkjasmári, glýserín, þang.
Aukefni í 1 líter:
Vítamín: E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 3.000mg.
Amínósýrur: þreónín (3c410) 20.000mg.
Magn: 80 ml í túpu.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.