Flýtilyklar
Saltsteinar og saltsteinastatíf
FW steinefnasteinn 2 x 10 kg
Steinefna- og selenbættur saltsteinn fyrir allan bústofn. Koparsnauður og hentar því sauðfé.
Saltsteinn sem inniheldur helstu steinefni og er góð uppspretta nauðsynlegra stein- og snefilefna fyrir sauðfé og nautgripi, þ.á.m. joð, selen o.fl. Steinninn er koparsnauður og hentar því sauðfé. Saltsteinninn er lystugur og veðurþolinn og nýtist því við fjölbreyttar aðstæður, t.d. í beitarhólf og útigerði.
Efnainnihald: Natríumklóríð, natríumfosfat, magnesíumoxíð, kalsíumsterat.
Natríum 38%; Fosfór 0,24%; Magnesíum 0,31%; Kalsíum 0,19%, Selen 10 mg/kg.
Aukefni (á kg):
Snefilefni: Joð (3b202 kalsíumjoðat, vatnsfrítt) 200 mg; kóbalt (3b304 húðað kornað kóbalt (II) karbónat) 80 mg; mangan (3b502 manganoxíð) 200 mg, sink (3b603 sinkoxíð) 300 mg, selen (E8 natríumselenít) 10 mg.
Leiðbeiningar um notkun (pr. grip á dag):
Kindur 10-15 g
Nautgripir 50-70 g
Hestar 50-70 g
Hafið 20 kindur eða 5 nautgripi um hvern stein.
Tveir steinar saman í pakka, 2 x 10 kg.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.