Flýtilyklar
Skordýravarnir
Twenty One flugnaeitur 500 gr
Skordýraeitur til notkunar gegn flugum í útihúsum svo sem fjósum, hesthúsum, fjárhúsum, hlöðum ofr.
Afar mikilvægt er að bera efnið á fleti þar sem flugur safnast saman og þar sem þær vilja gjarnan setjast. Mælt er með því að fylgst sé með útihúsunum áður en efnið er borið á til að átta sig á því hvar flugur eru líklegastar til að halda sig.
Úðun
Til að úða byggingu sem er 100m2 að grunnfleti skal leysa upp 250gr af Twenty One í 2 lítrum af hálfvolgu vatni. Hrærið vandlega þar til efnið hefur blandast fullkomlega. Síðan skal úða blöndunni á fleti þar sem flugur setjast helst þ.e. glugga, loft, efri hluta veggja, leiðslur ofr.
Penslun
Til notkunar í byggingu sem er 100m2 að grunnfleti skal leysa upp 250gr af Twenty One í 250 ml af hálfvolgu vatni. Hrærið vandlega uns úr verður hlaup, hæfilega þunnt til að bera á með málningarpensli. Efnið Twenty One skal síðan penslað á amk 30 bletti og skal hver þeirra vera um 20x30cm að flatarmáli, á svæðum þar sem mikið er um flugur, td þar sem sól skín á, gluggapósta og aðra slíka staði.
Athugið!
Nota má Twenty One í grennd við búfénað, en einungis þar sem skepnurnar ná ekki til. Ekki skal bera efnið á hvítkalkaða veggi eða gljúpa, rakadræga fleti.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.