Flýtilyklar
Undirdýnur
Acavallo geldýna Piuma Air Release
Einkar létt undirdýna með framúrskarandi öndun.
“Piuma” er ítalska og þýðir fjöður (mjög létt og mjúk).
Acavallo er stolt að kynna frábæra nýjung á markaðnum, Piuma Air Release dýnuna. Hún er gerð úr einkar léttu thermoplastic efni sem býður hesti og knapa einstaka kosti. Hún er lítil um sig en gefur mikla vörn fyrir bak hestsins, mjög létt og þunn og býður einstaka öndun og loftstreymi.
Einstök hönnun dýnunnar er fjölmargar bungur með lóðréttum götum sem gefa mikið lárétt loftflæði. Fyrir utan að vera höggvörn í hvert skipti sem bungurnar leggjast saman og þenjast í sundur undan hnakknum sér loftflæðið til þess að bak hestsins helst þurrt. Stór ferkönntuð göt eftir miðlínu dýnunnar auka svo enn loftflæði að baki hestsins.
Vatnsheld dýna sem auðvelt er að halda við. Má þvo á 30°C undir rennandi vatni.
Náttúruvænt og eiturefnalaust efni. Þolir vel miklar hitasveiflur.
- Vatnsheld
- Auðveld umhirða
- Engin eiturefni
- Náttúruvænt efni
- Þolir hitasveiflur vel
- Má þvo í þvottavél við 30 °C eða í höndum í fötu með vatni og mildu þvottaefni
- Notið ekki sterk þvottaefni
- Þurrkið ekki í þurrkara
- Geymið ekki við hitagjafa eða í beinu sólarljósi
- Látið þorna við stofuhita
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.