Flýtilyklar
Undirdýnur
Top Reiter FEATHERLIGHT undirdýna
Hægt er að skipta um innlegg í Featherlight undirdýnunni til að móta hana að mismunandi baklagi hrossa.
Dýnan er sérstaklega hönnuð fyrir hesta með háan og langan herðakamb. Hægt er að skipta um Piuma innlegg í dýnunni og hafa hana flata, hækka að framan, hækka að aftan eða hækka bæði að framan og aftan.
Hægt er að setja Piuma innleggin í vasa á dýnunni og nota mismunandi innlegg ef hesturinn er ójafn í byggingu. Með því að velja rétt innlegg mótarðu hnakkinn þinn sjálfur að mismunandi byggingarlagi hrossa.
Dýnan passar sérlega vel undir hnakkinn og rennur ekki til. Dýnan er opin að framan og þunn í hryggjarstykkið. Vösunum fyrir innleggin er lokað með frönskum rennilás við hryggjarlínuna.
Með dýnunni fylgir flata Piuma innleggið og hægt er að kaupa hin Piuma innleggin sér.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.