Flýtilyklar
Vöðvar, liðir & sinar
Pavo ProteinPlus 7kg
Próteinfóður sem hentar vel á móti próteinlágri fóðrun. Fóðrið inniheldur allar nauðsynlegar amínósýrur og enga auka orku eða sterkju.
Þegar gróffóður/hey er af ónógum gæðum, lítið viðbótar kjarnfóður er gefið eða þegar aukin þörf er á próteini (t.d. fyrir keppnishest eða eldri hest) fær hesturinn oft ekki nóg prótein úr fóðrinu til þess að mæta daglegri þörf. Pavo ProteinPlus opnar á þann möguleika að bæta eingöngu amínósýrum (próteini) við daglegt fóður. Með ProteinPlus má leiðrétta próteinskort í fóðri án þess að gera miklar breytingar á fóðruninni að öðru leyti.
Af hverju þurfa hestar nóg prótein?
Prótein eru byggð upp úr byggingareiningum, amínósýrum sem eru nauðsynlegar fyrir hvers kyns ferla í líkama dýra og manna. Prótein styrkja ónæmiskerfið, vöxt hófa og felds og endurnýjun fruma. Að auki eru prótein lykilatriði í vöðvaþroska og stýringu hormónabúskapar, þá sérstaklega þegar folöld og ræktunarhryssur eru annarsvegar. Prótein eru því ekki eingöngu mikilvæg fyrir vöðva heldur hafa þau hlutverk í almennu heilbrigði hests.
Hvenær er ráðlegt að bæta próteini í fóðrið?
Gróffóðurgreiningar leiða oft í ljós ónóg prótein í heyi og oft nægir gróffóðrið ekki til viðhalds, sér í lagi þegar um er að ræða hest í mikilli notkun og enn síður hest í keppnisþjálfun eða fylfulla/mjólkandi hryssu. Próteinríkt kjarnfóður getur oft verið lausnin en oft leggja slíkar vörur til viðbætta orku, vítamín og steinefni sem hesturinn þarfnast ekki. Í slíkum tilfellum er hreinræktaður próteingjafi eins og ProteinPlus lausnin.
- Hár styrkur gæðapróteina
- Bætiefni eingöngu til að rétta af próteinskort í fóðri
- Auðugt af lífsnauðsynlegum amínósýrum (þ.á.m. lýsín, meþíónín og þreónín)
- Styður almennt heilbrigði
Hentar vel í tengslum við:
- Lélegt gróffóður (lágt í próteini)
- Fóðrun án korns (grain free)
- Holdgrannir hestar sem fá nóg gróffóður
- Aukin þörf á próteini, t.d. fylfullar/mjólkandi merar, eldri hestar, keppnishestar, tryppi og hestar í bataferli
- Lélegt ástand felds og hófa
Fóðrunarleiðbeiningar m.v. 300 kg hest (g á dag) | |
Engin vinna | 50 g |
Keppnis/reiðhestur | |
Létt vinna | 50-75 g |
Miðlungs vinna | 75-100 g |
Mikil vinna | 75-150 g |
Holdgrannur hestur | 50-100 g |
Eldri hestur | 50-100 g |
Í bataferli | 50-100 g |
Fylfull hryssa | 50-100 g |
Mjólkandi hryssa | 100-200 g |
Tryppi <2,5 ára | 50-100 g |
Greiningarþættir: Hráprótein 37,2%, hráfita 4%, hrátréni 10%, hráaska 9%, natríum 0,33%, meþíónín 25 mg/kg, lýsín 100 mg/kg, þreónín 55 mg/kg.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.