Í nýjum bæklingi um heyverkunarúrval Líflands, finnur þú allt um vöruúrvalið sem snýr að rúlluheyskap, stæðuheyskap og stuðningsvörum við verkun og frágang.
Við minnum á hið vinsæla Megastretch rúlluplast sem hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna meðal íslenskra bænda og rúlluverktaka. Eins viljum við hampa Agrastretch 2S plastinu sem kom á markað í fyrra og hefur fengið mjög góða endurgjöf.
Einnig er vert að minnast á mikið og vaxandi úrval plastifilma og útbúnaðar til stæðuverkunar en jafnframt er í boði að sérpanta mjög fjölbreyttar stærðir sé þess óskað.
Þetta og margt fleira finnur þú í nýútkomnum heyverkunarvörulista Líflands sem þú finnur hér:
>> Skoða heyverkunarvörulista Líflands
Heyverkunarvörur eru nú aðgengilegri í vefverslun Líflands. Sjón er sögu ríkari.