30.12.2024
Lífland innkallar Chrisco Tyggerulle med kylling & kyllingelever með lotunúmer 01.12.2025 og 15.03.2026 sem var selt í verslunum Líflands.
Ástæða innköllunar :
Eitrunaráhrif hafa komið upp í hundum í Danmörku sem neytt hafa Chrisco Tyggeruller med kylling. Þessi vara sem virðist hafa valdið eitrunaráhrifum hefur ekki verið í sölu á Íslandi en af öryggisástæðum hefur verið ákveðið að innkalla þær vörur sem koma frá viðkomandi undirbirgja Chrisco og samstarfi við hann slitið. Sjá nánari upplýsingar á vef Chrisco https://www.chrisco.dk/
Ein vara sem seld hefur verið á Íslandi fellur í þennan innköllunarflokk og það er eftirfarandi vara:
-
Vörumerki: Chrisco
-
Vöruheiti: Chrisco Tyggerulle med kylling & kyllingelever
-
Best fyrir: 01.12.2025 og 15.03.2026
-
Nettómagn: 95 g
-
Geymsluskilyrði: Þurrvara
-
Framleiðandi: Chrisco
-
Framleiðsluland: Kína
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Lífland, Brúarvogur 1-3 104 Reykjavík
Lífland hvetur þá viðskiptavini sem eiga umrædda vöru að skila henni í næstu verslun og fá henni skipt eða endurgreitt.