19.03.2025
Sáðvörulisti Líflands fyrir vorið 2025 er kominn út í rafrænni útgáfu. Nú hefur ítarlegri umfjöllun um lykilvöruflokkana og helstu eiginleika þeirra verið bætt við og ætti það að auðvelda valið. Við hvetjum viðskiptavini og aðra bændur til þess að kynna sér úrvalið hjá okkur sem stutt er með góðri ráðgjöf, hagstæðum kjörum og skilvirkri dreifingu. Eins býður Lífland fría dreifingu hvert á land sem er sé pantað fyrir 15. apríl ef pöntuð eru 300 kg eða meira.
Jafnframt er sáðvöruúrvalið að finna í vefverslun okkar ásamt meiri umfjöllun en finna má í bæklingnum og hvetjum við viðskiptavini okkar til að skoða úrvalið þar.