Þórir Haraldsson verður eini eigandi Líflands

Framtakssjóðurinn Horn III, sem er í rekstri Landsbréfa, hefur skrifað undir kaupsamning um sölu á 50% hlut í Líflandi. Kaupandi er Þórir Haraldsson, sem fyrir átti helming hlutafjár í félaginu. Með þessum kaupum verður Þórir eini eigandi Líflands.

Lífland er leiðandi fyrirtæki í  framleiðslu á fóðri, sölu  á rekstrarvörum til landbúnaðar og sölu á Kornax hveiti. Fyrirtækið rekur sex sérverslanir fyrir bændur og hestamenn víðsvegar um landið. Lífland á Nesbúegg, annað af stærstu eggjaframleiðendum landsins. Lífland  á og rekur auk þess norska dótturfélagið Lifland Agri, sem sérhæfir sig í sölu á búnaði fyrir fjós. Hjá Líflandi og dótturfélögum starfa um 140  starfsmenn.

Saga Líflands nær aftur til ársins 1917 þegar félagið var stofnað af framsýnum bændum með það markmið að sjá um móttöku og dreifingu mjólkur til Reykvíkinga. Síðan þá hefur félagið þróast og er í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði landbúnaðartengdra vara og þjónustu á Íslandi.

ARMA Advisory veitti kaupanda ráðgjöf og Arctica Finance veitti seljanda ráðgjöf. Deloitte og Logos veittu aðilum viðskiptanna jafnframt lögfræðiráðgjöf.


Framkvæmdastjórar hjá Horni III

„Lífland hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og hefur reksturinn verið farsæll. Ráðist hefur verið í arðbærar fjárfestingar og reksturinn straumlínulagaður undanfarin ár. Meðfjárfestar okkar sýna hversu mikla trú þeir hafa á rekstri Líflands  á komandi árum með kaupum á hlut Horns III nú. Við þökkum Þóri Haraldssyni, stjórn og starfsmönnum Líflands kærlega fyrir gott og árangursríkt samstarf  og óskum félaginu velfarnaðar á komandi árum.“


Þórir Haraldsson, eigandi Líflands

„Ég hef mikla trú á framtíð Líflands og þeim grunni  sem félagið byggir á. Markmið með kaupunum er að efla enn frekar það góða starf sem hefur verið unnið innan fyrirtækisins. Jafnframt að tryggja að  Lífland haldi áfram að vaxa og dafna og verði áfram eitt af leiðandi fyrirtækjum í landbúnaði og matvælatengdri framleiðslu á Íslandi.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Hermanni M. Þórissyni og Steinari Helgasyni, starfsmönnum Horns III, fyrir gott samstarf og stuðning á liðnum árum.“

Horn III og Þórir
Frá vinstri, Steinar Helgason og Hermann M. Þórisson frá framtakssjóðinum Horni III og hjónin María Steinunn Þorbjörnsdóttir stjórnarmaður og Þórir Haraldsson eigandi Líflands


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana