Flýtilyklar
Fóður fuglar
GrowForte bætiefni f. hænur 150 g
GrowForte er fóðurbætiefni fyrir hænsni til blöndunar við drykkjarvatn. Vatnsleysanleg blanda vítamína, rafvaka (elektrólýta), amínósýra, lífrænna sýra og góðgerla ætluð hænsnum og öðru búfé sem styður við vöxt og almenn þrif.
GrowForte er fóðurbætiefni fyrir hænsni til blöndunar við drykkjarvatn. Vatnsleysanleg blanda vítamína, rafvaka (elektrólýta), amínósýra, lífrænna sýra og góðgerla ætluð hænsnum og öðru búfé sem styður við vöxt og almenn þrif.
Ávinningur af notkun GrowForte er fólginn í ýmsu, m.a. því að þótt fuglar séu undir álagi vegna breytinga eða umhverfisáreitis þá drekka þeir vatn þó svo að inntaka fóðurs kunni að minnka. Þannig fá fuglarnir æskileg snefilefni og vítamín þrátt fyrir allt.
Hvenær á að nota GrowForte?
- Til að styðja við vöxt og afurðasemi
- Til að styðja við ónæmiskerfi
- Þegar fuglar eru undir álagi, t.d. vegna bólusetningar
- Þegar ytri aðstæður eru krefjandi fyrir fuglana
- Fyrir og eftir flutning fugla
- Þegar fuglar eru í meiri þéttleika en æskilegt væri
- Á meðan og í kjölfar sjúkdóma og umgangspesta
- Þegar grunur leikur á að fóður sé af ónógum gæðum
- Þegar fuglar eru í hámarksvarpi
Fóðrunarleiðbeiningar:
150 grömm GrowForte blandast við 205 lítra drykkjavatns. Gefið í 5-6 daga í senn. Reikna má með að meðalvatnsþörf pr. hverja hænu sé um 350-400 ml/dag og því ber að blanda með hliðsjón af vatnsþörf fuglahópsins en æskilegt er að vatnsblandan sé notuð innan 24 klst frá blöndun.
Greiningarþættir: Hráaska 11,5%; hrátréni 0,01%; hráprótein 1,0%; hráfita 0%; meþíónín 1,2%; lýsín 1,5%; natríum 8,7%; kalí 4,6%. Samsetning (pr. kg): Natríumsúlfat (210.000 mg), kalíklóríð (88.000 mg), natríumklóríð (50.000 mg), magnesíumsúlfat (12.250 mg).
Aukefni (pr. kg): A-vítamín (E672) 15.250.000 AE; D3-vítamín (E671) 4.500.000 AE; E-vítamín (alfa-tókóferól 3a700) 10.000 mg; B2-vítamín (ríbóflavín) 4.500 mg; B6-vítamín (pýridoxín hýdróklóríð 3a315) 2.350 mg; B12-vítamín (sýankóbalamín) 11.500 mg; K-vítamín 4.500 mg; C-vítamín (askorbínsýra E300) 5.000 mg; Níasínamíð (3a315) 16.750 mg; Kalsíum-D pantóþenat 5.375 mg. Snefilefni: Mangansúlfat (E5) 12.250 mg; Koparsúlfat (E4) 12.250 mg; Sinksúlfat (E6) 12.250 mg. Amínósýrur, sölt þeirra og hliðstæður: DL-meþíónín (3c301) 12.000 mg; Lýsín (3.2.3) 15.250 mg. Meltingarbætandi góðgerlar: 7,0 x 1010 cfu/kg Enterococcus faecium NCIMB 10415. Rotvarnarefni: Sítrónsýra (E330) 1.000 mg.
Þyngd: 150 g bréf
-
Varpfóður kögglað 25kg
Verð4.183 kr. -
Lífrænt varpfóður (kurl) 20 kg
Verð5.790 kr. -
Hænsnasteinn 10 kg
Verð5.090 kr. -
Skeljakalk fyrir hænur 15 kg
Verð2.590 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.