Pink Mash rauðrófukögglarnir eru sérsniðnir til að bæta meltingu og draga úr magavandamálum hrossa. Pink Mash inniheldur góðgerla og góðgerlabætandi efni sem styðja við framgang góðgerla í meltingarvegi hestsins og draga úr áhrifum skaðlegra örvera. Bætt þarmaflóra eykur gerjun trénis í fóðri hestsins og eykur þar með fóðurnýtingu. Einn poki af Pink Mash endist að meðtaltali í um mánuð miðað við daglega notkun.
Helstu eiginleikar:
- Pink Mash rauðrófukögglar eru viðbótarfóður sem er hentugt fyrir alla hesta, hvort sem þeir eru í lítilli eða mikilli brúkun
- Það hentar einkar vel fyrir hross með magavandmál, s.s. bólgur og magasár og kemur að gagni fyrir hross sem halda illa holdum.
- Hentar vel fyrir hross með hófsperru eða heltivandamál.
Lykilþættir:
- Dregur úr ónotum í maga og getur haft jákvæð áhrif á örveruflóru í smáþörmum.
- Inniheldur rauðrófur sem innihalda andoxandi efnasambönd sem draga úr efnaskiptaálagi og styðja við orkubúskap og úthald vöðva við áreynslu.
- Mjög lystugt og trénisríkt fóður.
- Mjög lágt í sykur- og sterkjuinnihaldi.
- Inniheldur Protexin, góðgerla (Saccharomyces cerevisiae ) sem hafa jákvæð áhrif á örveruflóru meltingarvegar.
- Inniheldur góðgerlaörvandi efni (Prebiotic) sem draga úr áhrifum skaðlegra örvera í meltingarvegi.
- Tekur 5-10 mínútur að bleyta upp.
- Getur komið í stað hluta af heygjöf/gróffóðri og hjálpað til við að bæta vatnsbúskap hestsins.
- Styður við heilbrigða starfsemi þarma.
- Heppilegt fyrir hesta sem glíma við helti og hófsperru.
- Inniheldur hörfræ sem eru rík af Omega 3 fitusýrum.
Ráðlagður dagsskammtur:
- Til viðhalds: 100g/100 kg lífþunga.
- Í keppnisþjálfun/uppbyggingu: 200g/100 kg lífþunga.
- Í stað hluta gróffóðurs: 500g/100 kg lífþunga.
Notkun: Pink Mash skal bleyta upp fyrir notkun. Blandið við 2-3 hluta vatns og látið liggja í 10 mínútur fyrir gjöf. Notist innan 2ja tíma frá blöndun. Tryggið gott aðgengi að hreinu drykkjarvatni öllum stundum.
Greiningarþættir: Orka 9 Mj/kg, hráprótein 12,0%, hráfita 3,5%, hrátréni 40,0%, hráaska 5,0%, sykur <2,0%, sterkja <2,0%.
Innihald: Sojahýði, þurrkaðar rauðrófur, fínmalað hörfræ.
Aukefni: Prótexin góðgerlar (Saccharomyces cerevisiae (NCYC Sc45) 4b1702 1x10(10)CFU/kg)
Nettóþyngd: 15 kg
Geymist á hreinum, þurrum, köldum og dimmum stað.