Flýtilyklar
Rafgirðingaspennar
FenceControl rafgirðingaeftirlit
FenceCONTROL búnaðurinn auðveldar stjórnun og eftirlit með rafgirðingum. Tækið lætur vita í gegn um SMS um leið og spenna fellur (notandi ákveður sjálfur þau mörk) og eins ef girðingin hættir alveg að virka.
Í appinu færðu frekari upplýsingar um girðingarnar og þú getur stillt við hvaða voltatölu þú vilt fá aðvörunarboð. Eins færðu í gegn um appið upplýsingar um heildar stöðu girðingarinnar, stöðu rafhlöðu (sé hún til staðar) og getur kallað fram upplýsingar um ástand girðingarinnar í rauntíma.
- Frítt app fyrir farsímann þinn.
- Sýnir spennu á girðingu og spennu frá rafgirðingaspenni út í girðingu.
- Hægt að kveikja og slökkva á 9 og 12 volta rafgirðingaspennum (ef spennirinn og eftirlitstækið eru á sama orkugjafa. Ef notandi vill eiga möguleika á að kveikja og slökkva á 230V rafgirðingaspenni í gegn um appið þarf að auki millistýringu AK441123).
- Engin takmörk eru á hversu margir geta stýrt hverri girðingu í gegn um appið.
- Skýrar, myndrænar upplýsingar um spennu á girðingunni, stöðu rafhlöðu og sögu rafhlöðunotkunar.
- Kalla má fram raunstöðu girðingar hvenær sem er.
- Appið getur haldið utanum upplýsingar frá allt að 10 FenceCONTROL tækjum í einu.
- Notkunin er frí fyrstu 2 árin en eftir það kostar notkunin c.a € 35 á ári.
- Frekari upplýsingar má nálgast á www.ako-agrar.de/fencecontrol
Mikilvægt: Þegar FenceCONTROL er keypt er mikilvægt að kaupa rétta hleðslusnúru fyrir 12 volt eða 9 volt, eftir því hvað við á.
FenceCONTROL tækið virkar með öllum gerðum 9V, 12V og 230V rafgirðingaspenna.
Nota má tækið annaðhvort beint í gegn um 9, 12 eða 230V spenna (einkum ef tækið er ekki staðsett á sama stað og spennirinn) eða í gegn um sama orkugjafa og spennirinn (9 eða 12 volt) en gæta þarf að því að taka rétta gerð hleðslusnúru.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.