Flýtilyklar
Grasfræblöndur
Smáratún SLÆGJA 15kg
Harðgerð, góð og lystug uppskera með gott vetrarþol. Blandan inniheldur forsmitað smárafræ.
Blanda þar sem áhersla er lögð á góða uppskeru og gott vetrarþol. Rauðsmári YNGVE bætir uppskeru og eykur lystugleika gróffóðursins.
Innihald: Vallarfoxgras SNORRI 17%, RAKEL 38%; hávingull REVANSCH 10%; vallarrýgresi BIRGER 10%; forsmitaður rauðsmári YNGVE (2n) 17%, forsm. rauðsm. PEGGY (4n) 8%.
Ráðlegt sáðmagn 25-30 kg/ha.
Ávinningur af notkun niturbindandi belgjurta í landbúnaði er vel þekktur. Í íslenskum jarðvegi skortir jarðvegsbakteríur sem binda nitur í samlífi við smárategundir. Hingað til hafa bændur þurft að sérmeðhöndla smárafræ með Rhizobiumbakteríum til þess að virkja niturbindingareiginleika smárans. Með nýju forsmituðu fræblöndunum frá Líflandi er þetta úr sögunni. Smáratúns-grasfræblöndurnar innihalda, auk grasfræs, smárafræ sem húðað er með Rhizobium-bakteríum og næringarlagi sem gefur fræinu auka orku til spírunar og kemur smáranum á legg fljótt og örugglega.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.