Flýtilyklar
Rafgirðingaspennar
Hotline Peregrine 230V spennir
Hotline Peregrine spennir 230V og 12V varaaflsmöguleiki. 4,8joul.
Hotline Peregrine spennirinn er hágæða, öflugur spennir sem hannaður er fyrir langar, varanlegar girðingar og hentar ekki fyrir stuttar eða færanlegar girðingar.
Tvöfaldur straumútgangur eykur notkunarmöguleikana þar sem hægt er að nota á sama tíma lægri útganginn fyrir td hestagerði eða rúllustæður við hús og hærri útganginn á lengri, varanlegar girðingar. Ef verið er að nota báða útgangana samtímis skal hafa í huga að ef spennan minnkar á hærri útganginum minnkar hún líka á lægri útganginum.
Hægt er að nota 12V geymi (amk 75Ah) sem varaaflgjafa (fylgir ekki með).
Peregrine hefur einnig innbyggðan útleiðslumæli/afkastamæli. Því fleiri ljós sem lýsa með hverjum púlsi, því meiri straumur er á girðingunni. Ef aðeins fá ljós kvikna við hvern púls eru líkur á því að girðingin sé slitin eða skammhlaup sé á henni. Ef aðeins fá ljós eru kvikna ekki við hvern púls er líklegt að gróður sé vaxinn upp í girðinguna og leiði út.
Auðvelt er að setja upp og nota Peregrine spenninn. Þar sem spennirinn er húsarafmagnstæki þarf hann að hanga innandyra eða í vatns og vindheldum kassa.
Helstu kostir:
Öflugur 230V húsarafmagnsspennir
LED skjár sýnir spennu út í girðingu
Tveir útgangar fyrir hærri og lægri spennu
Innbyggður afkastamælir
Öflugt ABS hylki
Hentar vel fyrir hross, svín, kindur, geitur og nautgripi
Hægt að nota við allar gerðir rafmagnsvírs
Hentar fyrir allt að 60km girðingar (miðað við einn streng)
Orkunotkun: Hærri útgangur 10W, lægri útgangur 10W
Gerð orkugjafa: 230V og 12V varaafl
Hámarks drægni: Hærri útgangur 60km, lægri útgangur 8km
Orka út Joules: Hærri útgangur 4,8J, lægri útgangur 0,7J
Volt út í girðingu: Hærri útgangur 10.000V, lægri útgangur 10.000V
Volt við mikla útleiðslu: Hærri útgangur 4.800V, lægri útgangur 2.600V
Orkustillingar á straumi: Já
Aðvörunarljós lág spenna: Já
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.