Flýtilyklar
Bætiefnafötur nautgripir
Geldstöðufata 20kg
Fyrir kýr á geldstöðu, en mikilvægt er að gefa rétt hlutfall af steinefnum, snefilefnum og vítamínum á þeim tíma.
Geldstöðufata er fóðurbætiefni fyrir kýr á geldstöðu. Á mjaltaskeiði er mestum hluta stein- og snefilefnaþarfar annað með kjarnfóðurgjöf en á geldstöðu getur þurft að leggja gripunum til steinefni með öðrum hætti. Um leið er þörfin mikil, sér í lagi á seinni hluta geldstöðunnar.
Mikilvægt er að leggja ekki til of mikið kalk á síðari hluta geldstöðu en þannig má minnka líkur á doða og kalkskorti við burð. E-vítamín er mikilvægt á seinni hluta meðgöngunnar þar sem það getur dregið mjög úr efnaskiptaálagi.
Geldstöðufatan leggur til hagstætt hlutfall steinefna, snefilefna og vítamín fyrir kýr á geldstöðu.
Notkun: Allt að 150 g/dag á grip. Ein fata hentar fyrir 5 gripi. Ekki er ráðlegt að innihald Kúafötu nemi meira en
1,7% af heildarfóðri á dag. Fatan hentar til notkunar bæði innan- og utandyra.
Innihald: Melassi, natríumklóríð, magnesíumfosfat, díkalsíumfosfat og kalsíumoxíð.
Greiningarþættir (pr. kg): Kalsíum 50 g, fosfór 20 g, magnesíum 150 g, natríum 65 g.
Aukefni (pr. kg): Snefilefni: Kopar (3b405) kopar-(II)-súlfat, fimmvatnað 2.000 mg; sink (3b603) sinkoxíð 4.000 mg; mangan (3b502) mangan(II)oxíð 2.000 mg; joð (3b202) kalsíumjoðat, vatnsfirrt 400 mg; selen (3b801) natríumselenít 30 mg; kóbalt (3b304) húðað, kornað kóbalt(II)karbónat 50 mg.
Vítamín: A-vítamín (3a672a) 250.000 AE; D3-vítamín (3a671) 50.000 AE; E-vítamín (3a700) 2.000 AE.
Nettóþyngd: 20 kg
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.