Flýtilyklar
Bætiefnafötur nautgripir
Kálfafata
Kálfafata er bætiefnafata fyrir ungkálfa og nautgripi á vaxtarskeiði. Hátt hlutfall kalsíums og fosfórs undirbyggir góðan beinavöxt. Fatan inniheldur lífrænt selen, hátt hlutfall vítamína og andoxandi efnablöndu.
Kálfafata er bætiefnafata fyrir ungkálfa og nautgripi á vaxtarskeiði. Hátt hlutfall kalsíums og fosfórs undirbyggir góðan beinavöxt. Fatan inniheldur lífrænt selen, hátt hlutfall vítamína og andoxandi efnablöndu. Getur dregið úr efnaskiptaálagi, líkum á stíuskjögri og beinkröm og stuðlað að almennu heilbrigði eldisgripa.
- Hátt hlutfall kalsíum og fosfórs fyrir beinavöxt
- Inniheldur selen á lífrænu formi
- Efnainnihald grundvallað á efnagildum íslenskra heyja
Notkun: Allt að 100 g/dag á grip. Ein fata hentar fyrir 5 gripi. Fatan hentar til notkunar bæði innan- og utandyra. Haldið fötunni frá sauðfé.
Greiningarþættir (pr. kg): Kalsíum 148 g, fosfór 40 g, magnesíum 30 g, natríum 50 g.
Aukefni (pr. kg): Snefilefni: Joð (3b202) kalsíumjoðat, vatnsfirrt 200 mg; mangan (3b502) mangan(II)oxíð 2.000 mg; sink (3b603) sinkoxíð 4.000 mg; kopar (3b405) kopar-(II)-súlfat, fimmvatnað 1.500 mg; selen (3b801) natríumselenít 20 mg/kg; selen (3b8.11) selenmeþíónín 10 mg; kóbalt (3b304) húðað, kornað kóbalt(II)karbónat 75 mg.
Vítamín: A-vítamín (3a672a) 300.000 AE; D3-vítamín (3a671) 75.000 AE; E-vítamín (3a700) 1.000 AE. E-vítamín ígildi (AO-mix) 1.000 AE.
Varan inniheldurAO-Mix, andoxandi efnablöndu fyrir jórturdýr, E-vítamín ígildi sem getur haft hliðstæð andoxunaráhrif og 1.000 AE E-vítamíns sem kemur til viðbótar við uppgefið E-vítamíninnihald.
Innihald: Melassi, díkalsíumfosfat, kalsíumkarbónat, natríumklóríð, magnesíumoxíð, kalsíumoxíð, afurðir úr rósmarín (Rosmarinus officinalis) og túrmerik (Curcuma longa).
Nettóþyngd: 20 kg
-
Magnesíumfata (Himag) 20kg
Verð9.890 kr. -
Kúafata 20kg
Verð7.490 kr. -
Festing fyrir bætiefnafötur
Verð9.990 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.