Stemmandi bætiefni fyrir hunda og ketti, þegar hægðatregða eða niðurgangur gera vart við sig. Inniheldur vítamín, steinefni, meltanleg kolvetni og trefjar.
Diagel er framleitt af Mervue Laboratories á Írlandi.
Ávinningur af notkun Diagel:
- Endurnýjar rafvakaforða (elektrólýta) og glúkósa
- Styður við vatnsbúskap og endurnýjun vökvaforða
- Myndar gel/hlaup í þörmum. Þetta mýkir magainnihaldið þegar um hægðatregðu er að ræða
- Ver skaddaða magaslímhimnu
- Bindur óæskilegar örverur, toxín o.fl. og flytur þau brott með hægðum
Fóðrunarleiðbeiningar:
Gefa má Diagel með fóðri eða uppleyst í volgu vatni (10g Diagel í 125ml volgt vatn) Dreifa má Diagel yfir blautfóður. Ef gefið er þurrfóður má leysa Diagel upp í volgu vatni og hella yfir fóðrið.
Daglegur skammtur:
- Kettlingar 1 - 2kg: 5g
- Kettir undir 5kg: 10g
- Hvolpar undir 2kg: 5g
- Hundar 5 - 10kg: 20g
- Hundar 10 - 20kg: 40g
- Stórir hundar 20 - 30kg: 60g
- Mjög stórir hundar þyngri en 30kg: 80g
Ath! Notið Diagel ekki fyrir kettlinga og hvolpa undir 12 vikna aldri nema í samráði við dýralækni.
Ath! Þegar Diagel er notað skal dýrið ávallt hafa aðgang að fersku drykkjarvatni.
Innihald: Psyllium Husk, einhýdrataður þrúgusykur (Dextrose Monohydrate), natríumbíkarbónat (Sodium Bicarbonate), natríumklóríð (Sodium Chloride), kalíumklóríð (Potassium Chloride), magnesíumhýdroxíð (Magnesium Hydroxide).
Sölueiningar:
4 bréf sem innihalda 10 gr.
4 bréf sem innihalda 20 gr.
Geymsla: Geymið á köldum og þurrum stað við hitastig undir 25°C og ekki í beinu sólarljósi.