Flýtilyklar
Bætiefni fyrir hunda og ketti
ProBio góðgerlar f. ketti
ProBio þykkni er góðgerlabætt bætiefni fyrir ketti, bæði fullorðna og kettlinga. ProBio þykknið inniheldur nauðsynlega góðgerla sem koma stöðugleika á magaflóru og meltingu. 15ml túpa.
ProBio þykkni er góðgerlabætt bætiefni fyrir ketti, bæði fullorðna og kettlinga. Sýnt hefur verið fram á að viðbættir Enterococcus faecium góðgerlar í fóðri kettlinga hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfi þeirra.
ProBio þykknið er framleitt af Mervue Laboratories á Írlandi.
ProBio þykknið inniheldur hagstæða góðgerla sem koma stöðugleika á magaflóru og meltingu þegar magastarfsemi raskast t.d. vegna:
- Fæðuóþols
- Í kjölfar sýklalyfjagjafar
- Við ormahreinsun
- Vegna streitu
- Við fóðurbreytingar
- Vegna eitrunar
Kettlingar: Sýnt hefur verið fram á að með notkun góðra bætiefna með heppilegu innihaldi góðgerla sé hægt að draga úr niðurgangstilfellum í ungviði, einkum þegar vanið er af spena. ProBio er auðmeltanlegt og fyrsti valkostur fyrir kettlinginn þinn!
Góð ráð frá dýralækninum:
- Settu þykknið á nef eða á framfót og kötturinn mun sleikja þykknið.
- Blandaðu þykkninu við fóður. Blöndun í blautfóður auðveldar alla gjöf.
- Settu þykknið á fingurgóm og svo upp í köttinn.
Innihald:
Glýserín, maltkjarni (Malt Extract), sólblómaolía, ger og bætibakteríuörvandi efni (prebiotic manooligosaccharides og β-glucans).
Fóðrunarleiðbeiningar:
Gefið um munn eða bætið út á fóður eins lengi og þörf krefur. Gefa má þykknið beint í munn með sprautunni sjálfri eða blanda því í fóður. Gefa má ProBio eins lengi og þurfa þykir og jafnvel að staðaldri.
Fyrir ketti sem eru með mikla truflun á magastarfsemi ætti að gefa efnið 2 - 3svar á dag.
- Kettlingar yfir 12 vikna aldri 1 - 2kg: 1 ml daglega.
- Kettir 2 - 5kg: 2 ml daglega.
Kettir þurfa ávallt að hafa aðgang að fersku drykkjarvatni.
Geymsla: Geymið á köldum og þurrum stað við hitastig undir 25°C og ekki í beinu sólarljósi.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.