Flýtilyklar
Bætiefni fyrir hunda og ketti
VetiCalm fyrir hunda 30ml
VetiCalm er náttúruleg leið til streituminnkunar og til þess að róa órólega og kvíðna hunda.
VetiCalm er fljótandi fóðurbætir og náttúruleg leið til streituminnkunar og til þess að róa órólega og kvíðna hunda. VetiCalm er framleitt af Mervue Laboratories á Írlandi.
Streituvaldar í umhverfi og aðstæðum hunda geta leitt af sér kvíða í tengslum við aðskilnað, innilokun, ferðalög, hávaða og aðstæður þar sem hundurinn hefur ekki fulla stjórn eða getur ekki forðað sér frá. Kvíði í hundum getur leitt af sér óæskilega hegðun á borð við:
- Nag og skemmdir
- Að losa saur og þvag á óæskilegum stöðum
- Gelt og væl
- Árásagirni
Dýralæknar og efnafræðingar í rannsóknar- og þróunardeild Mervue hafa skilgreint upptakaþætti kvíða í lífeðlisfræði hunda og var fóðurbætiefnið þróað sérstaklega í þeim tilgangi að hafa róandi og kvíðastillandi áhrif á þá.
VetiCalm fyrir hunda inniheldur einstæða blöndu virkra innihaldsefna sem þekkt eru fyrir að hafa róandi áhrif á hunda sem gerir VetiCalm eitt fremsta efnið á markaði í dag:
- ✓Garðabrúða
- ✓L-tryptófan
- ✓Píslarblóm (Passion flower)
- ✓Hjartafró
- ✓Magnesíum
- ✓L-þeanín
Notkun:
1ml per 1 kg líkamsþunga.
Bætt út á fóður.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.