Flýtilyklar
Bætiefni fyrir hunda og ketti
VetiCoal kolaþykkni f. gæludýr 30 ml
VetiCoal er þykkni sem inniheldur virkjuð kol (lyfjakol) sem geta gagnast þegar iðrakveisa gerir vart við sig, vindgangur er til staðar og sem inngrip við eitrunum í hundum og ýmsum smádýrum.
VetiCoal er þykkni sem inniheldur virkjuð kol (lyfjakol) sem geta gagnast þegar iðrakveisa gerir vart við sig, vindgangur er til staðar og sem inngrip við eitrunum í hundum og ýmsum smádýrum. VetiCoal er framleitt af Mervue Laboratories á Írlandi.
VetiCoal
- Veitir náttúrulegan stuðning við heilbrigt meltingarkerfi.
- Getur dregið úr einkennum á borð við vindgang og niðurgang.
- Gott að eiga heimavið sem snemmbúin viðbrögð við eitrunum.
Nota skal VetiCoal þegar:
- Dýr þjást af vindgangi
- Magaónot og óróleiki gerir vart við sig
- Niðurgangur gerir vart við sig
- Dýr éta yfir sig
- Dýr éta rusl eða hræ á víðavangi
- Grunur er um eitrun vegna nagdýraeiturs - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
- Dýr innbyrða eitraðar plöntur/sveppi - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
- Dýr éta pottablóm eða afskorin blóm á borð við liljur og lauka - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
- Dýr innbyrða lauk, hvítlauk - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
- Dýr innbyrða lyf á borð við parasetamól og íbúfen - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
- Dýr (hundar) innbyrða súkkulaði - Leitið að auki ávallt strax til dýralæknis!
ATH! Leitið tafarlaust til dýralæknis ef grunur er um eitrun eða ef dýr hefur innbyrt fæðu sem getur verið hættuleg viðkomandi tegund.
VetiCoal inniheldur 50% af virkjuðum kolum (lyfjakolum). Ráðlagður skammtur af virkjuðum kolum er 1 g/kg lífþunga og því er ráðlagður skammtur af VetiCoal 2 g/kg lífþunga. Nánari upplýsingar um skammtastærðir fyrir mismunandi tegundir er að finna á umbúðum og á mynd.
Innihaldsefni: Virkjuð lyfjakol, sjávarþari.
Fóðrunarleiðbeiningar:
Gefa má VetiCoal beint í munn með sprautunni sjálfri eða blanda þykknið í fóður. Dýrin þurfa ávallt að hafa aðgang að fersku drykkjarvatni. Gefa má VetiCoal kettlingum og hvolpum frá 12 vikna aldri. Fylgjast skal með dýrinu við inntöku VetiCoal.
Má gefa hundum, köttum, minni spendýrum (naggrísir, kanínur, mýs, rottur, hamstrar) og skriðdýrum.
Fæst í 30 ml þykknistúpu.
Geymsla: Geymið á köldum og þurrum stað við hitastig undir 25°C og ekki í beinu sólarljósi.
Lykilorð: Virkjuð kol, lyfjakol, lífkol, gæludýr, hundar, kettir, smádýr, skriðdýr, eitrun, magakveisa
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.