Flýtilyklar
Belgjurtir
Logasmári HEUSERS OSTSAAT
Einær smárategund sem hentar í grænfóðurblöndur, t.d. með vetrarrýgresi og sumarhöfrum. Fræið kemur forsmitað.
Einær smárategund sem hentar í grænfóðurblöndur, t.d. með vetrarrýgresi og sumarhöfrum. Fræið kemur forsmitað. |
Einær smárategund sem hentar í grænfóðurblöndur, t.d. með vetrarrýgresi og sumarhöfrum. Fræið kemur forsmitað.
Logasmári (Trifolium incarnatum) HEUSERS OSTSAAT er hraðvaxta yrki logasmára. Logasmári hefur ekki verið ræktaður mikið hérlendis en óformlegar prófanir hafa leitt í ljós að hann þrífst ágætlega hér. Logasmári þolir léttsúran jarðveg.
Líkt og aðrir smárar hefur logasmári hátt fóðrunarvirði með tilliti til prótein-, steinefna- og orkuinnihalds auk þess sem hann leggur svarðarnautum sínum til köfnunarefni vegna samlífis síns við niturbindandi rótargerla. Smita þarf fræið með þar til gerðu bakteríusmiti til að tryggja þann þátt.
Þar sem logasmári er einær og fljótur að spíra, hentar hann sérlega vel með t.d. vetrarrýgresi eða höfrum til grænfóðuröflunar og má bæði beita og slá hann.
Ráðlagt sáðmagn: 5-15 kg/ha.
Smita þarf fræið með bakteríusmiti fyrir sáningu.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.