Flýtilyklar
Ónæmiskerfi
PAVO OmegaFit 1 ltr
Pavo OmegaFit inniheldur hina einstöku nýjung, Ahiflower olíu, sem hefur bætandi áhrif á feld og bólgusvar ónæmiskerfis. Hentar bæði hestum og hundum.
Viltu hestinum þínum bara það besta? Viltu leggja honum til öfluga heilsubót með náttúrulegum aðferðum? Pavo OmegaFit er jurtaolía með styrk af Omega 3, 6 og 9 fitusýrum sem er vandfundinn og gerir vöruna að einu besta Omega bætiefninu á markaði í dag.
Hestar mynda ekki lífsnauðsynlegar Omega fitusýrur í eigin efnaskiptum en þarfnast þeirra engu að síður til að tryggja eðlilega líkamsstarfsemi. Með Pavo OmegaFit eru allar Omega 3-6-9 fitusýrurnar lagðar til í styrk sem þú finnur ekki í öðrum vörum og þá sérstaklega ekki sú mikilvægasta, Omega 3. Omega fitusýrurnar spila mikilvæg hlutverk í ýmsum líffærakerfum þar á meðal ónæmiskerfi, öndun, vöðvaendurheimt, liðum og liðleika, húð og feldi og í hjarta- og æðakerfi. Pavo OmegaFit inniheldur ekki eingöngu bólguminnkandi Omega 3 fitusýrur, heldur einnig hina einstöku Omega 6 fitusýru GLA (gamma linolenic acid) sem hefur einnig góð áhrif á bólgusvar.
Að frátöldum styrk Omega fitusýra, eru innbyrðis hlutföll Omega 3 og 6 einstaklega mikilvæg: röng hlutföll geta haft öfug áhrif og raunar aukið bólgur. Kjörið hlutfall samtvinnað við aðgengilegan hámarksstyrk, eru þeir þættir sem gera Pavo OmegaFit að þeirri einstöku vöru sem hún er.
Omega skort má helst greina á líflausum feldi, lágu orkustigi, lélegu ónæmissvari og almennu sleni og slappleika.
Náttúrulegur áhrifamáttur Ahiflower olíunnar:Mikilvægasti innihaldsþáttur Pavo OmegaFit er Ahiflower: jurtaolía sem er fullkomin nýjung í næringarfræði hesta. Stóri munurinn á Ahiflower og sambærilegum olíum er einstæður styrkur Omega 3 fitusýrunnar. Þetta er vegna þess að fitusýrurnar í Ahiflower eru frásogaðar án fyrri umbreytingar. Þetta veldur því að ekkert tapast og mun meira Omega 3 er eftir handa hestinum. Almennt er eingöngu hægt að ná viðlíka styrk úr olíum úr dýraríkinu. Pavo OmegaFit er á hinn bóginn 100% jurtaolía sem er mjög lystug og fullkomin viðbót við náttúrulega samsett heildarfóður.
Ahiflower olía hentar einnig hundum afar vel og hefur sambærileg áhrif á hárafar og almennt heilbrigði þeirra. Ráðlögð skammtastærð er 1,25 ml pr. hver 10 kg lífþunga/dag.
- 100% náttúruleg jurtaolía unnin úr jurtinni akursteinku, Buglossoides arvensis (Ahiflower®)
- Óerfðabreytt
- Góð uppspretta af Omega 3, 6 og 9
- Hefur bólgueyðandi eiginleika
- Styður við heilbrigt hárafar, hófa, liðamót, liðleika og ónæmi
- Styður við heilbrigt bólgusvar
- Vísindalega prófað
OmegaFit – Notkun fyrir hesta
▪ Hentar öllum hestum
▪ Notað gegn húð- og feldvandamálum eins og þurrki eða exemi
▪ Fyrir hesta með ónæmisvandamál
▪ Frábært til að styðja við endurheimt eftir erfiðar æfingar
▪ Styður við almennt heilbrigði
Innihald: 99,9 % Ahiflower®-olía / 0,1 % Fortium® RPT40 IP (náttúrulegt andoxunarefni með rósmaríni)
Hráfita 99,9 %
- Omega 3: 57,6 %
- Omega 6: 14,0 %
- Omega 9: 9,3 %
Notkun:
15ml/dag fyrir 300kg hest
Sem viðbótargjöf stöku sinnum má 2-3 falda skammtinn
Fyrir hunda: 1,25 ml pr. hver 10 kg lífþunga á dag.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.